27.11.2021 | 15:22
Sameiningartákn þjóðarinnar?
Í þingsetningarræðu þann 23. nóvember gaf Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands til kynna að fólk sem ekki þægi bólusetningu gegn kórónaveirunni væri með því að krefjast sjálfu sér til handa réttar til að smita aðra. Nú er það svo að þótt bólusetningar geti að einhverju leyti og tímabundið dregið úr líkum á því að einstaklingur smitist eða smiti aðra[1], hefur samanburður milli landa og svæða ekki leitt í ljós að munur sé á útbreiðslu smita eftir hlutfalli bólusettra.[2] Auk þess liggur fyrir að þau bóluefni sem notuð eru geta reynst hættuleg, og í tilfelli yngra fólks jafnvel hættulegri en sjúkdómurinn sem bólusett er gegn, auk þess sem langtímaáhrif eru óþekkt. Þetta hefur komið fram bæði hjá nefnd breskra stjórnvalda um öryggi bóluefna og hjá frönsku læknaakademíunni, en báðar þessar stofnanir hafa mælt gegn bólusetningu heilbrigðra barna og ungmenna[3].
Með orðum sínum sendi forseti Íslands fordæmalausa hvatningu til sundrungar og fordóma út í samfélagið. Slík orð hafa afleiðingar. Ýmsir hafa því vitanlega fylgt í kjölfarið með ákall um mismunun, aðrir með útilokun og grimmd gagnvart þeim sem síst skyldi[4]. Nú síðast hefur Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, lagt til að allir þeir sem ekki láta bólusetja sig með efnum sem hindra smit lítið sem ekkert, gegn sjúkdómi sem hérlendis hefur um 0,2% dánarhlutfall, og flestallir í áhættuhópum eru þegar varðir fyrir, sæti sóttkví til eilífðar[5]. Þetta er í raun tillaga um lífstíðarfangelsi tugþúsunda fólks án dóms og laga og þar með afnám réttarríkisins.
Í því eitraða andrúmslofti ótta og taugaveiklunar sem ríkt hefur í bráðum tvö ár er lykilatriði að forystumenn samfélagsins leitist við að sameina fremur en sundra, ýta undir umburðarlyndi fremur en fordóma, og rísi undir þeirri skyldu að grundvalla skilaboð sín á traustri þekkingu, en ekki yfirborðsvitneskju, sögusögnum og æsifréttum. Það er grafalvarlegt mál þegar forseti landsins, sameiningartákn þjóðarinnar, hvetur til sundrungar, fordóma og ofsókna gegn tilteknum hópi fólks í samfélaginu, og ýtir undir kröfur um tilefnislaust afnám almennra mannréttinda.
Guðna Th. Jóhannessyni ber ótvíræð skylda til að biðjast í einlægni afsökunar á herhvöt sinni og reyna þannig að forða frekara tjóni en hann hefur þegar valdið. Hann ætti einnig að íhuga í fullri alvöru hvort hann skorti kannski þá skynsemi, yfirvegun og siðferðisþroska sem embætti hans krefst.
-------------------------
[1] Kampf: The epidemiological relevance of the COVID-19-vaccinated population is increasing, The Lancet Regional Health Europe, 2021. Sýnir að vernd bóluefna gegn smiti fer síminnkandi. Einnig: Nordström, Ballin: Effectiveness of Covid-19 Vaccination Against Risk of Symptomatic Infection, Hospitalization, and Death Up to 9 Months: A Swedish Total-Population Cohort Study, The Lancet (preprint), 2021. Sýnir að vernd bóluefna hverfur nær alveg á fáeinum mánuðum.
[2] Subramanian, Kumar: Increases in COVID-19 are unrelated to levels of vaccination across 68 countries and 2947 counties in the United States, European Journal of Epidemology, 2021. Rannsóknin sýnir enga fylgni milli smita og hlutfalls bólusettra.
[3] Le Monde og BFMTV, 17. nóvember 2021: Les vaccins anti-Covid ne doivent pas être donnés à tous les enfants mais certains d'entre eux devraient en bénéficier, a estimé mercredi l'Académie française de médecine, prenant une position médiane face à un regain de polémiques sur le sujet. Mælt er með því að bólusetja einungis börn í áhættuhópum og þau sem búa með fólki í áhættuhópum.
Sjá einnig: JCVI statement on Covid vaccination of children and young people, aged 12-17 years: August 4th 2021 á https://www.gov.uk/government/publications/
[4] RÚV, 24. nóvember 2021: Þurfa að sýna bólusetningarvottorð við matarúthlutun. Einnig Fréttin, 26. nóvember 2021: Ungt par sem er statt núna á fæðingadeild Landspítalans hefur sætt mikilli óvild og hótunum þar sem parið hefur hafnað örvunarskammti af Covid bóluefni. Fram kemur að fóstrið greindist með hjartagalla eftir bólusetningu móður og það er ástæða þess að örvunarskammti var hafnað.
[5] Kári Stefánsson, Morgunblaðið, 26. nóvember 2021: Svo það má færa rök fyrir því að koma eigi þeirri skyldu á að þeir einstaklingar sem ekki vilja láta bólusetja sig verði skikkaðir í sóttkví að eilífu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.10.2022 kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
17.11.2021 | 22:24
Á að gera óbólusett fólk að annars flokks borgurum?
Leiðari Sigmundar Ernis Rúnarssonar í Fréttablaðinu þann 13. nóvember sl. vekur óhug. Í leiðaranum leggur ritstjórinn til að fólk sem ekki hefur verið bólusett gegn kórónaveirunni verði að miklu leyti útilokað frá samfélaginu. Orðræðan er einkar ógeðfelld. Þeir sem ekki kjósa að láta bólusetja sig hafi engin rök fyrir afstöðu sinni, þeir séu baggi á samfélaginu, þeim sé sama um annað fólk og þar fram eftir götunum. Þessi orðræða er sérstaklega óhugnanleg í ljósi þess að hún endurómar beint svipaða orðræðu fyrr á tímum í aðdraganda ýmissa helstu illvirkja mannkynssögunnar. Þannig virðast skoðanir Sigmundar Ernis lýsa hugsunarhætti og siðferðisstigi sem vænta hefði mátt að kæmi ekki upp á yfirborðið í frjálsu lýðræðissamfélagi á árinu 2021. En sagan endurtekur sig. Því er ekki að neita.
Staðhæfingar úr lausu lofti gripnar
Tillaga Sigmundar Ernis grundvallast á staðhæfingum um innlagnir og smit sem ekki koma að neinu leyti heim og saman við þau gögn sem fyrir liggja hérlendis og raunar víðar. Hún grundvallast jafnframt á augljósum fordómum gagnvart þeim hópi fólks sem af málefnalegum ástæðum kýs að þiggja ekki lyfjagjöf sem líkur eru á að geti reynst því skaðleg nokkuð sem töluvert af gögnum rökstyður.
Fyrst að hinu fyrrnefnda. Sigmundur lætur að því liggja að samfélagslegar takmarkanir vegna kórónaveirunnar séu fyrst og fremst óbólusettu fólki að kenna. Hann staðhæfir (án heimildar) að á Saxlandi í Þýskalandi séu 95% þeirra sem leggjast á spítala vegna veirunnar óbólusettir og heimfærir þessa staðhæfingu upp á stöðuna hér innanlands. Hér er farið með blekkingar. Smittölur á covid.is og gögn Landspítalans um innlagnir, að því marki að þau eru uppfærð, sýna þvert á móti að tæplega 2/3 hlutar innlagna er fólk sem þegar hefur fengið bólusetningu. Sama gildir um smit. Sigmundur byggir þannig tillögu sína á röngum upplýsingum. Ef hlutfall bólusettra er tekið með í reikninginn má ráða að vegna bólusetningar séu smit ríflega þriðjungi færri en þau væru án hennar. Það er nú allur munurinn. Af þessu má sjá að það er fráleitt að draga óbólusett fólk til ábyrgðar vegna vandræða illa rekins spítala.
150 föld áhætta miðað við önnur bóluefni
Frá því að bólusetningar við kórónaveirunni hófust hérlendis hafa samtals 143 einstaklingar verið lagðir inn á sjúkrahús vegna aukaverkana í kjölfar bólusetningar[i]. Alls hafa ríflega 5.500 tilkynningar borist Lyfjastofnun um aukaverkanir, þar af eru tæplega 230 vegna alvarlegra aukaverkana.[ii] Þá hefur verið tilkynnt um 32 dauðsföll í þessu samhengi.
Árið 2019 bárust níu tilkynningar um aukaverkanir vegna bólusetningar við inflúensu.[iii] Leiðrétt gagnvart misstórum úrtökum er fjöldi aukaverkana það sem af er þessu ári því 152 sinnum fjöldinn 2019.
Árið 2019 barst engin tilkynning um alvarlega aukaverkun og engin tilkynning um dauðsfall. Samkvæmt íslenskri rannsókn má almennt búast við einni alvarlegri aukaverkun á hverja hálfa til eina milljón bólusettra.[iv]Það sem af er þessu ári eru þær 1000-2000 á hverja hálfa til eina milljón.
Bandarísk og evrópsk gögn sýna sömu leitni. Á fundi Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna nú í haust kom fram að mannfjöldaleiðrétt gögn sýndu 50 sinnum fleiri dauðsföll vegna bólusetninga á þessu ári miðað við meðaltal á fyrri ára.[v]
Þegar eru komnar fram vísbendingar um aukna tíðni fósturláta meðal bólusettra kvenna á fyrstu 20 vikum meðgöngu[vi] og minna má á að mörg hundruð íslenskar konur hafa leitað til yfirvalda vegna neikvæðra afleiðinga bólusetningar á tíðahring, sem látið hefur verið hjá líða að rannsaka með viðunandi hætti.
Íslenskir hjartalæknar hafa lýst áhyggjum af bólusetningu ungra karlmanna vegna óeðlilega hárrar tíðni hjartavöðvabólgu. Tölur frá CDC í Bandaríkjunum benda til sömu leitni; tilfelli amk. 20 sinnum fleiri en búast hefði mátt við.[vii] Aðrar afleiðingar eru meðal annars blóðtappar og lömun. Tilkynningar til VAERS í Bandaríkjunum, um hjarta- og gollurhússbólgur á árinu 2021, eru margfaldar miðað við fyrri ár.[viii]
Tilkynningar um hjartavöðvabólgu og gollurhússbólgu í kjölfar bólusetninga til VAERS 2010-2021
Vitanlega þarf ekki að vera að allar tilkynntar aukaverkanir séu við nánari athugun tengdar bólusetningu. Sú gríðarlega fjölgun tilkynninga sem sjáanleg er vegna þessara nýju bóluefna gefur þó til kynna að þau kunni að hafa margfalda áhættu í för með sér miðað við eldri tegundir bóluefna.
Vitað er að kórónaveiran leggst afar misþungt á fólk, fyrst og fremst eftir aldri. Ungu og heilbrigðu fólki er hún afar hættulítil, börnum nánast alveg hættulaus, en dánarlíkur aldraðra eru háar. Nefnd breskra stjórnvalda um öryggi bólusetninga lagðist eindregið gegn bólusetningu ungmenna nú í haust, vegna þess að ávinningur væri hverfandi og lengri tíma afleiðingar óþekktar. Nefndin var beitt miklum þrýstingi af hálfu stjórnvalda, en hvikaði ekki frá afstöðu sinni. Að endingu leyfðu stjórnvöld bólsetninguna með þeim rökum að annars myndu þau sjálf valda tjóni á skólagöngu ungmennanna!
Að hafna bólusetningu er málefnaleg ákvörðun studd rökum
Meginhluti þeirra sem hafa ekki látið bólusetja sig hérlendis er heilbrigt yngra fólk, sem er ólíklegt til að veikjast alvarlega af kórónaveirunni og því ólíklegt til að þurfa á sjúkrahússvist að halda. Í ljósi áðurnefndra vísbendinga um stóraukna áhættu af bólusetningunni (152 sinnum meiri líkur á aukaverkun, 50 sinnum meiri líkur á dauða) er slík ákvörðun fullkomlega málefnaleg. Jafnvel mætti leiða að því líkur að það að fólk sem ekki hefur þörf fyrir bólusetningu sleppi henni dragi úr álagi á heilbrigðiskerfið fremur en að auka það. Þær 143 innlagnir vegna bólusetningar sem bætast við hinar 500 alls vegna kórónaveirunnar valda nefnilega líka álagi á kerfið.
Bólusetning gegn kórónaveirunni er gagnleg þeim sem þurfa á henni að halda. Fyrir ungt og heilbrigt fólk eru líkur á að bólusetningin valdi fremur tjóni en ávinningi. Það að hafna bólusetningu á grundvelli gagna og áhættumats er málefnaleg ákvörðun og slíka ákvörðun ber að virða.
Við skulum vona að þær vísbendingar um útilokunar- og ofríkishugsunarhátt sem sjá má í leiðara Fréttablaðsins séu aðeins orðin tóm. Vonum fremur að ritstjóranum hafi orðið á, að málflutningurinn grundvallist fremur á þekkingarleysi, órökréttum ótta og óskýrri hugsun, en illvilja í garð samborgaranna.
Erling Óskar Kristjánsson hugbúnaðarsérfræðingur
Geir Ágústsson verkfræðingur
Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur
(Birt í Morgunblaðinu 17. nóvember 2021)
[1] https://www.lyfjastofnun.is/frettir/covid-19-sundurlidun-tilkynninga-vegna-gruns-um-alvarlega-aukaverkun-i-kjolfar-bolusetningar-16/
[1] https://www.lyfjastofnun.is/covid-19/aukaverkanatilkynningar-vegna-covid-19/
[1] Upplýsingar frá Lyfjastofnun með tölvupósti 1.11.2021
[1] https://skemman.is/bitstream/1946/21438/1/Lokaskjal.pdf
[1] https://www.youtube.com/watch?v=WFph7-6t34M
[1] Brock, Thornley: Spontaneous Abortions and Policies on COVID-19 mRNA Vaccine Use During Pregnancy. Science, Public Health Policy, and the Law Volume 4:130143 November, 2021, Clinical and Translational Research
[1] https://www.cdc.gov/vaccines/acip/meetings/downloads/slides-2021-08-30/03-COVID-Su-508.pdf?fbclid=IwAR3jJQ_8QqZXixM8hSMMmOq7eDVd5J-JrpTHQhAGz74VQSA6xOiaSYWPyJI
[1] https://openvaers.com/covid-data/myo-pericarditis
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
-
agny
-
graenar-lausnir
-
bjarnijonsson
-
bjornalexandermikli
-
gattin
-
dofri
-
contact
-
fhg
-
gretaulfs
-
gudni-is
-
mosi
-
bofs
-
muggi69
-
gudrunmagnea
-
zeriaph
-
holi
-
haukurn
-
diva73
-
hlynurh
-
ingibs
-
ingolfursigurdsson
-
fun
-
jennystefania
-
johnnybravo
-
eyfeld
-
jonbergsteinsson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
krist
-
kristjan9
-
loncexter
-
ludvikjuliusson
-
sleggjudomarinn
-
magnuss
-
svarthamar
-
vestskafttenor
-
otti
-
runaro
-
joklamus
-
sigurjons
-
stefanjul
-
summi
-
saemi7
-
samy
-
torfusamtokin
-
vestfirdir
-
thorsteinn
-
valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.9.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 288224
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar