22.2.2018 | 21:31
Undarlegar vendingar
Þær vendingar sem hafa orðið hjá Sjálfstæðismönnum í Reykjavík verða nú að teljast heldur undarlegar og lítt í takt við þá lýðræðishefð sem hefur til þessa verið höfð í hávegum hjá flokknum við val á framboðslissta.
Það er hættuspil að bjóða fram lista sem nær eingöngu er skipaður fólki sem litla sem enga reynslu hefur af borgarmálum gegn sitjandi meirihluta sem þrátt fyrir allt nýtur verulegs fylgis, fólki sem þekkir málefni borgarinnar út og inn. Sérstaklega kemur undarlega fyrir sjónir að Kjartani Magnússyni skuli skákað út en hann er nánast eini borgarfulltrúinn sem eitthvað hefur heyrst í á kjörtímabilinu og hefur auk þess víðtækari þekkingu á málum borgarinnar en flestir aðrir.
Með vali Eyþórs Arnalds í leiðtogasætið með öfluga og reynda borgarfulltrúa sér við hlið hefði mátt búast við góðum árangri flokksins í komandi kosningum. En eftir þessi hjaðningavíg er ég hræddur um að þær væntingar hljóti að daprast.
Maður hlýtur jafnframt að velta framhaldinu fyrir sér. Má nú eiga von á því að stjórnum hverfafélaganna verði framvegis falið í hendur valdið til að raða á framboðslista? Er það ný stefna Sjálfstæðisflokksins að hverfa frá því fyrirkomulagi að almennir flokksmenn hafi þetta vald og færa það til þeirra fáu einstaklinga sem ráða hverfafélögunum?
Átti ekki von á þessari niðurstöðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.2.2018 kl. 11:24 | Facebook
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
- agny
- graenar-lausnir
- bjarnijonsson
- bjornalexandermikli
- gattin
- dofri
- contact
- fhg
- gretaulfs
- gudni-is
- mosi
- bofs
- muggi69
- gudrunmagnea
- zeriaph
- holi
- haukurn
- diva73
- hlynurh
- ingibs
- ingolfursigurdsson
- fun
- jennystefania
- johnnybravo
- eyfeld
- jonbergsteinsson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kristjan9
- loncexter
- ludvikjuliusson
- sleggjudomarinn
- magnuss
- svarthamar
- vestskafttenor
- otti
- runaro
- joklamus
- sigurjons
- stefanjul
- summi
- saemi7
- samy
- torfusamtokin
- vestfirdir
- thorsteinn
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.10.): 10
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 287709
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Flokkinn og fulltrúaráðið setur ofan við þessa ólýðræðislegu og tilefnislausu afgreiðslu mála.
Ég er sammála pistli þínum, Þorsteinn, og þetta er hið undarlegasta mál, einkum gagnvart Kjartani Magnússyni, þeim mæta manni.
Jón Valur Jensson, 23.2.2018 kl. 00:46
Já, lýðræðið hefur verið grundvallaratriði þegar Sjálfstæðismenn velja á lista. En nú virðist eitthvert klíkuræði hafa tekið við og í rauninni erfitt að gera ráð fyrir öðru en að það sé vísbending um framhaldið. Þetta er grundvallarbreyting og á eftir að hafa margvíslegar afleiðingar því með þessu er það í raun fulltrúaráðið sem ræður framboðslistanum og valdið færist þannig til stjórna hverfafélaganna, sem skipa fulltrúaráðið. Rétturinn til að kjósa í prófkjörum er nú eiginlega það eina sem venjulegir flokksmenn fá út úr því að vera í flokknum. Það má velta fyrir sér hvort þeim fari fækkandi þegar þessi réttur hverfur.
Þorsteinn Siglaugsson, 23.2.2018 kl. 11:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.