Stöndum saman um þetta!

Það eina sem vantar í núverandi stjórnarskrá er ákvæði sem tryggir að tiltekinn hluti kjósenda geti kallað fram þjóðaratkvæðagreiðslu um mál. Nú er staðan sú að forseti getur vísað málum til þjóðaratkvæðis en beiting þeirrar heimildar er háð geðþótta og er því ekki sá öryggisventill sem hún ætti að vera.

Útspil Bjarna Benediktssonar og viðbrögð Árna Páls Árnasonar sýna að hægt er að ná samstöðu um þá breytingu á stjórnarskránni sem máli skiptir.

Nú ríður á að aðrir stjórnmálamenn grípi þennan bolta - fólk standi nú einu sinni saman og sýni þjóðinni að það sé fært um að klára af þjóðþrifamál með sóma.


mbl.is Fagnar blaðagrein Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Glætan að lögfræðimenntaður maðurinn ætli sér að standa við þetta. Þessa klausu er að finna í lögum og þeir fyrirgera sér áframhaldandi setu á þingi með þessum gjörðum.

79. gr. Tillögur, hvort sem eru til breytinga eða viðauka á stjórnarskrá þessari, má bera upp bæði á reglulegu Alþingi og auka-Alþingi. Nái tillagan samþykki …1) skal rjúfa Alþingi þá þegar og stofna til almennra kosninga af nýju. (.....)

pallipilot (IP-tala skráð) 20.5.2015 kl. 22:25

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Fyrirgera sér áframhaldandi setu á þingi? Hvers vegna ættur þeir að gera það? Menn eru nú gjarna kosnir oftar en einu sinni á þing.

Þorsteinn Siglaugsson, 21.5.2015 kl. 11:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 287325

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband