Hvílíkt dómadags bull!

Áratugum saman hefur RÚV verið fjármagnað með skattfé að mestu. Áður hét skatturinn afnotagjald. Það nægði yfirleitt ekki fyrir rekstrinum og því þurfti að fjármagna það sem út af stóð með öðru fé. Svo var þessu breytt og skatturinn hækkaður og þá bregður svo við að hann er hærri en á þarf að halda.

Framlag til RÚV er ákvarðað af stjórnvöldum. Ef það þarf að skera niður er það einfaldlega gert. En að það hafi einhver áhrif á "ritstjórnarlegt sjálfstæði" stofnunarinnar hvort skorið er niður með því að lækka skattinn eða nýta hluta hans til annarra þarfa er auðvitað tómt bull. Ef stjórnarmenn trúa því í alvöru ættu þeir að íhuga afsögn.


mbl.is Vegur að ritstjórnarlegu sjálfstæði RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

lestu þetta aðeins yfir aftur. það er verið að tala um það að féð sem rakað er saman með núverandi skatti rennur ekki allur til rúv eins og eðlilegt ætti að vera. með þessu móti skerðast auðvitað tekjur rúv og þannig verður rúv háðari ríkinu og það er það sem verið er að benda á, ekkert annað. þegar afnotagjöldin voru þá fóru þau öll inn í rúv, þar liggur munurinn.

þórarinn (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 19:18

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er enginn munur, það er nú það sem ég er að benda á. Hvort sem skatturinn er kallaður tekjuskattur, afnotagjöld eða eitthvað annað er það ákvörðun stjórnvalda hve háar tekjur RÚV eiga að vera. Í stað þess að taka hluta afnotagjaldanna til annarra nota hefði eins verið hægt að lækka þau en hækka einhvern annan skatt á móti.

Þorsteinn Siglaugsson, 31.1.2011 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 287366

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband