Furðulegur fréttaflutningur

Í skýrslunni sem um ræðir kemur glöggt fram að verðlag innfluttra vara er enn umtalsvert lægra en gengisþróun krónunnar gefur tilefni til frá því að hún hrundi árið 2008. Það segir sig auðvitað sjálft að til lengri tíma litið hlýtur verðlag að nýju að nálgast það að verða í eðlilegu samhengi við gengi krónunnar. Það er því bersýnilega eðlilegt að sú þróun haldi áfram um hríð. Þar af leiðandi er fullkomlega eðlilegt að verð hafi á undanförnu ári hækkað meira en gengisþróun hefur gefið tilefni til. Þeirri þróun lýkur aðeins þegar jafnvægi næst.

Fréttin er bersýnilega spunnin gagnrýnislaust upp úr fréttatilkynningu hins svonefnda Samkeppniseftirlits. Í fréttatilkynningunni er að vanda gefið í skyn að verðþróun á matvörumarkaði sé ekki í samræmi við gengisþróun, þvert á þær staðreyndir sem fram koma í skýrslunni. Það væri skiljanlegt ef skýrslan væri frá Neytendasamtökunum eða Alþýðusambandinu að slíkur málflutningur væri viðhafður. En Samkeppniseftirlitið er opinbert stjórnvald og því eru meira að segja faldar mjög víðtækar valdheimildir. Það er kominn tími til að tekið verði til í þessari stofnun enda ótækt að hún dæli út rangfærslum og þvælu ár eftir ár athugasemdalaust.

Screen Shot 2015-03-12 at 18.39.41


mbl.is Matarverð fylgdi ekki gengisþróun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Upplysingar frá einhverjum eftirlitsaðilum geta verið rangar.

  krónutala í innkaupum sem eru venjulega þau sömu í einhver ár segja hinsvegar þá sögu- að hringl með krónutölur-á verði hækkun/lækkun-- kemur þannig út í bókhaldi heimilis -að það sem fekkst fyrir 5000 þús. fyrir ári kostar um 10.000 í dag. Hvar munurinn liggur hefur ekki verið fært til bókar- ennþá .

Erla Magna Alexandersdóttir, 12.3.2015 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband