10.12.2010 | 11:56
Árinni kennir illur ræðari
Ekki aðeins Ísland, heldur öll Norðurlöndin nema Finnland koma illa út úr þessari könnun. Þegar skýringa er leitað er auðvitað nærtækast að velta fyrir sér hvað er öðruvísi í Finnlandi en á hinum Norðurlöndunum. Þá kemur fljótt í ljós að fyrir allmörgum árum hurfu Finnar frá þeim kennsluháttum sem enn tíðkast hér og á hinum Norðurlöndunum en tóku á ný upp hefðbundnari aðferðir sem hafa gefist miklu betur. Þar er áhersla lögð á að börn fái fremur að njóta þeirrar þekkingar sem mannkynið hefur á löngum tíma öðlast en að þeim sé ætlað að uppgötva hana sjálf á fáum árum.
Þeir sem um þessi mál fjalla, sér í lagi kennarar og skólastjórnendur, reyna hins vegar af fremsta megni að forðast þennan kjarna málsins. Umfjöllun um slaka frammistöðu og skýringar á henni er lítt sýnileg, en mikið er malað um lítt marktækan mun á útkomu milli landshluta, kynja og svo framvegis. En þá sjaldan á þetta er minnst er auðvitað reynt að kenna öðru um en lélegum kennsluháttum, slöku námsefni og litlum kröfum. Þar liggja foreldrar auðvitað vel við höggi (og svo auðvitað sjónvarp, tölvuleikir, búðir og neyslusamfélagið almennt eins og vanalega).
Virðingarleysi ástæða PISA-útkomu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:27 | Facebook
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
- agny
- graenar-lausnir
- bjarnijonsson
- bjornalexandermikli
- gattin
- dofri
- contact
- fhg
- gretaulfs
- gudni-is
- mosi
- bofs
- muggi69
- gudrunmagnea
- zeriaph
- holi
- haukurn
- diva73
- hlynurh
- ingibs
- ingolfursigurdsson
- fun
- jennystefania
- johnnybravo
- eyfeld
- jonbergsteinsson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kristjan9
- loncexter
- ludvikjuliusson
- sleggjudomarinn
- magnuss
- svarthamar
- vestskafttenor
- otti
- runaro
- joklamus
- sigurjons
- stefanjul
- summi
- saemi7
- samy
- torfusamtokin
- vestfirdir
- thorsteinn
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Blessaður Þorsteinn.
Þú ert nær kjarna málsins, en þú varst í Kárahnjúkahörmungunum, þó komst þú alveg að kjarna hans þar.
Ég er svo heppinn að þegar ég á gamals aldri átti 2 stráka, þá lentu þeir í skóla og hjá kennara sem höfðu lært. Lært að bull elur af sér bull.
Strákarnir fá kennslu í stærðfræði, ekki kennslu í uppgötvun dýpri lögmálum hennar. Skýring þess er að kennarinn á ólærðan krakka, sem er í tíunda bekk kann ekki einföldustu atriði, enda aldrei fengið kennslu í þeim.
Kennarinn vill ekki endurtaka heimskuna, og fékk bækur sem eru frábærar. Og árangurinn eftir því, 6 ára börn vita meira en eldri fórnarlömb heimskunnar, þau kunn að leggja saman 2+ 2.
Eins er það með lesturinn, að tengja saman stafi er grunnur hans, ekki að leggja orð á minnið, eða læra að lesa út frá myndum, eða öðrum hlutum en stafrófinu.
Það er skýring á 0, þú bendir á hana.
Hafðu þökk fyrir það eins og önnur góð skrif þín.
Kveðja að austan,.
Ómar Geirsson, 10.12.2010 kl. 14:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.