18.11.2010 | 17:05
Dapurleg, en dæmigerð fréttamennska
Þótt því fari fjarri að ég sé sammála Marinó um alla hluti verður ekki frá honum tekið að hann hefur á undanförnum misserum staðið vaktina fyrir skuldara með rökföstum og málefnalegum málflutningi.
Marinó hefur aldrei fallið í þá gryfju að gerast persónulegur í garð þeirra sem hann tekst á við í rökræðum. Það sýnir að hann er skynsamur og heilsteyptur maður.
Íslensk fréttamennska hefur löngum snúist mest um að endursegja það sem aðrir segja fréttamanninum án þess að nein sjálfstæð hugsun komið við sögu. Það er mikill galli og veldur því að lítt er hægt að treysta á íslenska fjölmiðla til að komast að kjarna máls.
Vandað blað sem vildi upplýsa lesendur sína um það stóra deilumál sem skuldavandi heimilanna er myndi tefla fram röksemdum með og móti mismunandi lausnum og draga fram staðreyndir til að hjálpa fólki að glöggva sig á málinu.
Þetta hafa ritstjórar Fréttatímans greinilega ekki bolmagn né karakter í að gera. Því fara þeir auðveldu leiðina, sem er það sem gjarna tekur við þegar endursögnunum sleppir í íslenskri blaðamennsku, og taka að ata auri þann mann sem í góðri trú hefur staðið hvað fastastur fyrir í vörn fyrir heimilin í landinu.
-----------------------------
Þegar áföll dynja yfir eins og verið hefur undanfarin misseri veitir ekki af að gott fólk gangi fram fyrir skjöldu og taki forystu um að leita lausna og upplýsa almenning. Þeir sem sýna það góða fordæmi eiga ekki að þurfa að óttast að óvandaðir og ábyrgðarlausir blaðasnápar sitji um þá og bíði færis að ráðast gegn þeim persónulega.
Ég skora á Marinó G. Njálsson að láta ekki deigan síga heldur draga til baka úrsögn sína úr samtökunum sem hann hefur barist fyrir af einurð og heilindum. Ég er sannfærður um að allir góðir menn styðja hann til þess - hvort sem þeir eru honum endilega sammála um alla hluti eða ekki.
Segir sig úr stjórn vegna umfjöllunar Fréttatímans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:10 | Facebook
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
- agny
- graenar-lausnir
- bjarnijonsson
- bjornalexandermikli
- gattin
- dofri
- contact
- fhg
- gretaulfs
- gudni-is
- mosi
- bofs
- muggi69
- gudrunmagnea
- zeriaph
- holi
- haukurn
- diva73
- hlynurh
- ingibs
- ingolfursigurdsson
- fun
- jennystefania
- johnnybravo
- eyfeld
- jonbergsteinsson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kristjan9
- loncexter
- ludvikjuliusson
- sleggjudomarinn
- magnuss
- svarthamar
- vestskafttenor
- otti
- runaro
- joklamus
- sigurjons
- stefanjul
- summi
- saemi7
- samy
- torfusamtokin
- vestfirdir
- thorsteinn
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sammála
Gunnar Th. Gunnarsson, 18.11.2010 kl. 17:16
Sammála
vj (IP-tala skráð) 18.11.2010 kl. 17:23
Marino þu hefur reinst okkur betur en nokkur annar ekki beigja þig fyrir þessum fjölmiðladrullusokkum þeyr eru komnir i vörn eru að missa allt ur höndunum þettað er ein af siðustu tilraunum þeyrra til að bjarga eigin skinni eg vona að Islenska þjoðin sniðgangi þennan frettamiðil
Runar Gudmundsson (IP-tala skráð) 18.11.2010 kl. 17:37
Sammála
Sigurður Sigurðsson, 18.11.2010 kl. 22:59
Ég tek undir áskorun um að Marinó endurskoði ákvörðun sína. Það er öllum sama hvað hann skuldar mikið, það er ekki aðalatriðið.
Svo skora ég á fólk að gefa skít í Fréttatímann fyrir að leggjast svona lágt!
Guðmundur Ásgeirsson, 18.11.2010 kl. 23:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.