Hagfræðilegt mat, ekki pólitísk ákvarðanataka

Nefndinni sem ráðherra skipaði er ætlað að reyna að leggja mat á áhrif valkostanna á efnahaginn. Nefndin er ekki skipuð til að komast að einhverri málamiðlun um einhverjar aðgerðir, aðeins til að greina áhrifin. Það er því mikill misskilningur að það skipti einhverju máli að "fulltrúar" einhverra hópa séu í nefndinni. Hvað ættu þessir fulltrúar að gera þar? Reyna að afvegaleiða niðurstöðurnar í þágu þeirra sem þeir eru fulltrúar fyrir?

Það má hins vegar gagnrýna hvort í nefndina sé verið að velja það fólk sem mesta þekkingu og vit hefur á þessum málum. Og svo er auðvitað stóra spurningin sú hvernig skipunarbréf nefndarinnar lítur út. Hefur hún fyrirmæli um að greina heildaráhrif, ekki bara hvað gerist fram að áramótum eða fram að kosningum?

Ég hef takmarkaða trú á að þessi nefnd nái utan um hlutverk sitt, en það er ekki vegna þess að í henni séu ekki "fulltrúar" þessara eða hinna hópanna. Slík gagnrýni er alveg marklaus.


mbl.is Vinnan ómerk án fulltrúa launafólks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru dauðsföllin?

Eins og sjá má á gröfunum hefur smitum farið fjölgandi í Frakklandi frá því í byrjun júlí. En hvar eru dauðsföllin? Þau eru sárafá samanborið við fjölda smita, fjöldinn stendur í stað jafnvel þótt smitum fjölgi hratt, þveröfugt við það sem við sjáum í fyrri bylgjunni, þar sem þetta tvennt fylgist greinilega að. Sömu sögu er að segja í flestum öðrum löndum. Er kannski kominn tími til að fara að draga aðeins úr móðursýkinni?

Eða erum við enn stödd á svipuðum stað og í miðju túlípanafárinu í Hollandi, McCarthy fárinu í Bandaríkjunum, eða galdrafárinu evrópska á sínum tíma?

Múnderingin á frönsku ráðherrunum á neðstu myndinni gæti verið vísbending um það.

Screenshot 2020-08-28 at 21.30.27

 

 

 

 

 

 

 

 

Screenshot 2020-08-28 at 21.29.56

 

 

 

 

 

 

 

 

Screenshot 2020-08-28 at 21.37.24


mbl.is Smitfjöldi nær hæstu hæðum í Frakklandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. ágúst 2020

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband