Börnin eru í tíunda sæti

Það er fyrirlitlegt hvernig stjórnvöld koma fram gagnvart börnum og unglingum. Hversu mörgum lífum hyggjast forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar, sóttvarnalæknir og landlæknir að fórna á altari þess sjúklega hræðslufaraldurs sem þessir einstaklingar hafa hrundið af stað og hamast nú við að viðhalda? Bara síðast í dag með fráleitum ósannindum um dánartíðni af þessari pest, á svonefndum "upplýsingafundi" sem væri réttnefndari upplýsingaóreiðufundur.

Hversu mörgum ungum lífum ætlar þetta samviskulausa fólk að fórna?

Og hversu lengi ætlar meginhluti þjóðarinnar að styðja þetta framferði athugasemdalaust?


mbl.is Skora á Menntaskólann við Sund að opna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvarlegar og hættulegar rangfærslur?

Kórónaveiran er vissulega lífshættuleg fyrir fólk sem komið er yfir 60-70 ára aldur.

Hjá fólki milli 20-30 ára eru dánarlíkurnar einn af hverjum tíu þúsund - 0,01%

Hjá börnum eru þær einn á móti hundrað þúsund - 0,001%

Bóluefni hafa hins vegar ávallt einhverjar óæskilegar afleiðingar í för með sér fyrir einhvern hluta þeirra sem fá þau. 

Fyrir þessa hópa er því alls ekki sjálfgefið að bólusetning sé hættuminni en það að sýkjast af veirunni.

Það er verulegur ábyrgðarhluti ef þessir læknar eru nú farnir að hvetja til þess að fólk taki óþarfa áhættu með heilsu sína, en það virðist gert hér með því að gera engan greinarmun á áhættunni fyrir mismunandi hópa. Áhrif þessara nýju bóluefna eru eftir allt saman enn tiltölulega lítið þekkt.

Maður spyr sig hvort slíkar rangfærslur gætu varðað við lög eða siðareglur lækna.


mbl.is „Covid lýkur hvergi fyrr en því lýkur alls staðar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. nóvember 2020

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband