Ha?

Ég hef nú svo sem haft ágæta trú á Birni Inga Hrafnssyni og þótt þar fara maður bæði skynsamur og hress. En ekki þykir mér það skynsamlega sagt að unga fólkið muni fylkja sér á bak við Jón Sigurðsson. Mannkertið minnir mig mest á illa gefinn en einkar rogginn menntaskólakennara sem tekur sjálfan sig mjög hátíðlega og nemendur hafa gaman af að gera grín að. Fyrir mitt leyti held ég að miklu líklegra sé að ungt fólk geti hugsað sér að fylkja sér að baki Birni Inga sjálfum.
mbl.is Björn Ingi Hrafnsson: Yngri kynslóðin mun fylkja sér bak við Jón Sigurðsson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvægasta kosningaloforðið svikið? Að sjálfsögðu.

Fyrir kosningarnar lét Jón [Sigurðsson] að því liggja að yrði fylgi við Framsóknarflokkinn í samræmi við slæmt gengi hans í skoðanakönnunum yrði flokkurinn líklega ekki áfram í ríkisstjórn.

„Þá var ég að tala um stjórnarmyndunarviðræður. Stjórnarmyndunarviðræður eru ekki hafnar.

Þetta er nú haft eftir Þjóðskeggi. Það kemur svo sem engum á óvart að þessi fyrirbrigði svíki það kosningaloforð sitt að fara ekki í ríkisstjórn ef þjóðin hafnar þeim. En að gera það á grunni jafn lágkúrulegra útúrsnúninga og hér um ræðir, það kemur smá á óvart. Það er einfaldlega skylda allra alvöru stjórnmálaleiðtoga, eftir þessar kosningar, að koma Framsóknarflokknum frá. Ef Geir Haarde ætlar að verða eitthvað annað en eins kjörtímabils arftaki Davíðs verður hann að gera það. Svo einfalt er það.


mbl.is Verið að skoða ýmis mál varðandi hugsanlegt samstarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú reynir á

Nú hefur Geir Haarde tækifæri til þess að marka sér stöðu sem leiðtogi og mynda nýja ríkisstjórn með sterkan þingmeirihluta. Hinn kosturinn er að halda áfram núverandi stjórnarsamstarfi með veikburða eins manns meirihluta, á grunni sósíalískrar atvinnustefnu.
mbl.is Ríkisstjórnin hélt velli með minnsta mun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. maí 2007

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.10.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 288249

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband