23.11.2007 | 13:51
Siðbót nýja meirihlutans
Í framhaldi af OR hneykslinu hafa stuðningsmenn nýja meirihlutans margir borið í brjósti þá von að tekið yrði til í ranni þessa fyrirtækis, vinnubrögð við ákvarðanatöku bætt og gagnsæi aukið.
Miðað við orð Júlíusar og Kjartans lítur því miður ekki út fyrir að þetta sé að gerast. Fremur virðist sem markmiðið með því að stofna umræddan stýrihóp hafi verið að gera almenningi og borgarfulltrúum erfiðara að átta sig á því hvaða ákvarðanir verið er að taka og hvar þær eru teknar. Það er alþekkt brella að þegar komast þarf hjá óþægilegri umræðu á einum vettvangi getur verið sniðugt að setja upp annan vettvang og hafa svo valdmörkin milli þessara tveggja óljós og loðin.
Ætli þetta hafi verið markmið Svandísar Svavarsdóttur þegar hún hóf þessa umræðu á sínum tíma, eða er hún einfaldlega að missa þetta mál úr höndum sér?
![]() |
Krefjast stjórnarfundar í OR hið fyrsta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.11.2007 | 09:31
Verkefni fyrir alvöru feminista?
Það að setja 15 ára stúlkubarn í heilan mánuð í fangaklefa með yfir 20 karlkyns glæpamönnum er að sjálfsögu ekkert annað en glæpur. Í fréttinni kemur líka fram að þetta sé ekkert einsdæmi í Brasilíu.
Vissulega er Brasilía langt í burtu, rétt eins og Saudi-Arabía og önnur lönd þar sem réttindi kvenna eru þverbrotin á hverjum degi. En ætti það ekki að vera viðfangsefni þeirra sem láta sig jafnrétti varða, líka á Íslandi, að berjast gegn svona löguðu? Er ekki tímanum betur varið í það en að karpa um hvað ráðherrar eru kallaðir, á landi þar sem jafnrétti kynjanna er hvað mest í heiminum og þar sem fjarstæðukennt er að ímynda sér að 15 ára barn yrði nokkurn tíma læst inni með tugum harðsvíraðra glæpamanna?
![]() |
15 ára stúlka sett í fangaklefa með 20 mönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.11.2007 | 08:52
Sóleyismi - köllum alla hluti réttum nöfnum!
Ég hef verið að velta því fyrir mér, í framhaldi af alræmdu þingmáli Steinunnar V. Óskarsdóttur út af ráðherrum, hvort ekki sé víðar pottur brotinn í nafngiftum.
Helstu rök Steinunnar fyrir því að konur eigi ekki að kalla ráðherra eru þau að það sé ankannalegt að kalla konur herra. Undir þetta sjónarmið hafa margir tekið, þótt einhverjir afturhaldsseggir hafi reynt að flytja fyrir því rök að orðið ráðherra þýði allt annað en titillinn herra. En það er vitanlega bara vegna þess að þeir eru afturhaldsseggir og karlmenn með karlmiðaðar skoðanir. Það sér nú hver m... einstaklingur!
Nú vill svo til að margir hlutir bera nöfn sem hljóma ankannalega. Þar á ég ekki aðeins við starfsheiti fólks heldur líka, og ekki síður, dýr og plöntur. Það getur heldur tæpast verið einhver endapunktur í jafnréttisbaráttu að nema staðar við jafnrétti meðal mannfólksins. Náttúran á vitanlega sinn rétt líka. Dýrin eiga sinn rétt og blómin og ekki má brjóta á þeim.
"Sóley" hefur hingað til þótt gott og gilt heiti á blómi einu sem fólk ber raunar misjákvæðar tilfinningar til. Sóleyjar eru einhver algengustu blóm landsins, ásamt fíflum raunar, sem hafa þann skemmtilega kost að skipta um kyn á gamals aldri og eru svo kallaðir biðukollur fram í andlátið. Það sýnir auðvitað á kaldhæðnislegan hátt hvernig karllæg viðhorf í samfélaginu smita út frá sér: Það sem er í blóma lífsins er karlkyns, en verður kvenkyns þegar það drepst!
En fíflar voru nú ekki tilefni þessa pistils heldur sóleyjar. Við sjáum nefnilega, þegar rýnt er í nafnið sóley, að það er samsett heiti, rétt eins og "ráðherra". Sól-ey. Sól og ey. Og þá veltir maður fyrir sér, í anda þingkonunnar mætu, hvort hér sé ekki eitthvað óeðlilegt á ferðinni. Er ekki einkennilegt að kalla blóm ey? Eyjar tilheyra ekki einu sinni jurtaríkinu. Ég held reyndar, að í þessari nafngift hins ágæta blóms megi greina viðhorf af svipuðum toga og það karllæga viðhorf að konur megi vel kalla herra. Ég kýs að kalla það, í þessu samhengi, "landlægt" viðhorf. Landlægt viðhorf er þegar landfræðileg hugtök smita út frá sér yfir á alls óskylda hluti, svo sem plöntur og dýr. Hvað sóleyjarnar varðar er augljóst hvað átt hefur sér stað. Og það kemur enn betur í ljós þegar litið er á fyrri hluta nafnsins, sól. Á þetta blóm eitthvað sameiginlegt með sólinni, eitthvað frekar en með eyju. Svona lúmsk er landlægni orðræðunnar nú orðin!
Ég legg því til að blóminu sóley verði fundið annað og betur viðeigandi nafn og lýsi eftir tillögum þar um. Heitin þurfa að sjálfsögðu að vera í anda róttæks sóleyisma og verður enginn fífla-gangur liðinn þar!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 23. nóvember 2007
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
-
agny
-
graenar-lausnir
-
bjarnijonsson
-
bjornalexandermikli
-
gattin
-
dofri
-
contact
-
fhg
-
gretaulfs
-
gudni-is
-
mosi
-
bofs
-
muggi69
-
gudrunmagnea
-
zeriaph
-
holi
-
haukurn
-
diva73
-
hlynurh
-
ingibs
-
ingolfursigurdsson
-
fun
-
jennystefania
-
johnnybravo
-
eyfeld
-
jonbergsteinsson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
krist
-
kristjan9
-
loncexter
-
ludvikjuliusson
-
sleggjudomarinn
-
magnuss
-
svarthamar
-
vestskafttenor
-
otti
-
runaro
-
joklamus
-
sigurjons
-
stefanjul
-
summi
-
saemi7
-
samy
-
torfusamtokin
-
vestfirdir
-
thorsteinn
-
valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.10.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar