19.11.2007 | 19:47
Öruggur staður til að vera á!
Þetta minnir mann á Brimborgarauglýsingarnar. Þeir ganga þó ekki það langt að bjóða fólki upp á að læsa sig inni í kjallaranum hjá þeim!
Ég gerir ráð fyrir að blessað fólkið verði pínu vonsvikið þegar dómsdagur líður án þess að neitt sérstakt gerist (vonandi..).
![]() |
Dómsdagssöfnuður bíður eftir heimsendi ofan í helli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.11.2007 | 16:39
Fréttafátæktin mikla ...
... hefur greinilega hafið innreið sína með glans á Morgunblaðinu.
Er þetta ekki 27 ára gömul frétt?
![]() |
Fornlegir munir á Vesturgötunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.11.2007 | 16:10
Fullorðnir 8 ára nauðgarar
Þetta er ákaflega einkennileg frétt.
Í fyrsta lagi hljómar mjög undarlega að átta ára barn geti verið fært um nauðgun.
Í öðru lagi virðist augljóst að átta ára barn er barn en ekki fullorðinn maður. Hvernig getur þá nokkrum manni dottið í hug að rétta yfir því "sem fullorðnum"?
![]() |
8 og 9 ára piltar í haldi grunaðir um aðild að nauðgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.11.2007 | 11:50
Stórhættuleg vopn
![]() |
Lést eftir að hafa verið skotinn með rafmagnsbyssu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.11.2007 | 09:23
Af því að páfinn sagði það
Þetta eru greinilega alvarlegar athugasemdir sem þarna hafa verið settar fram. Slíkri gagnrýni er hvorki nægjanlegt að svara með skætingi né vísan til menntunar þeirra sem gerðu ætluð mistök. Miðað við umræðuna undanfarið virðast hins vegar aðstandendur þýðingarinnar yfirleitt bregðast við gagnrýni á þann hátt.
Það er verulega slæmt mál ef þýðingin er svo illa unnin að virtir fræðimenn á sviði málfræði og textafræði sjái ástæðu til að gera við hana alvarlegar athugasemdir. Maður fékk á tilfinninguna þegar þessi þýðing kom út að allt væri reynt að gera til að hamla umræðu um hana og þagga niður í gagnrýnisröddum. Greinilegt að PR vinnan var vel unnin. En sé verkið gallað kemur það auðvitað í ljós á endanum.
Ég minnist þess að áður en þýðingin kom út hafði einhver gagnrýni ratað á síður blaðanna og var því meðal annars haldið fram að ekki hefði farið fram nægjanlega ítarleg umræða meðal fræðimanna til að hægt væri að segja að verkið væri tilbúið. Aðstandendur brugðust alltaf ókvæða við slíkum ábendingum og virtust taka alla gagnrýni mjög persónulega.
Í þetta verk er búið að eyða áralangri vinnu fjölda fólks og væntanlega ótöldum milljónatugum. Það er verulega alvarlegt mál ef ekki hefur tekist almennilega til.
![]() |
Hvað heldurðu að við höfum verið að gera?“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggfærslur 19. nóvember 2007
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
-
agny
-
graenar-lausnir
-
bjarnijonsson
-
bjornalexandermikli
-
gattin
-
dofri
-
contact
-
fhg
-
gretaulfs
-
gudni-is
-
mosi
-
bofs
-
muggi69
-
gudrunmagnea
-
zeriaph
-
holi
-
haukurn
-
diva73
-
hlynurh
-
ingibs
-
ingolfursigurdsson
-
fun
-
jennystefania
-
johnnybravo
-
eyfeld
-
jonbergsteinsson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
krist
-
kristjan9
-
loncexter
-
ludvikjuliusson
-
sleggjudomarinn
-
magnuss
-
svarthamar
-
vestskafttenor
-
otti
-
runaro
-
joklamus
-
sigurjons
-
stefanjul
-
summi
-
saemi7
-
samy
-
torfusamtokin
-
vestfirdir
-
thorsteinn
-
valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.10.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar