Heldur þann versta en þann næstbesta!

Þar höfum við það. Okkur mistókst með sögulegum hætti að verða leiðandi í þeirri atvinnugrein sem almennt telst efst í fæðukeðjunni - fjárfestingabankastarfsemi. Þá er best að einbeita sér að þeirri vonlausustu!
mbl.is Ísland í hópi lykilríkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru ekki innflytjendur best fallnir til að dæma um forsendurnar?

Það er einkennileg ráðstöfun að hindra innflutning landbúnaðarvara með þessum hætti. Sé verðið of hátt leiðir það væntanlega til þess að varan selst ekki og verður því ekki flutt inn - en um þetta hljóta innflytjendur sjálfir að verða að dæma, enda taka þeir áhættuna.

Mér finnst það mikil afturför ef ekki verður lengur hægt að fá hér almennilega franska osta vegna ofstjórnaráráttu ráðuneytisins. Og svo er vælt um inngöngu í ESB á sama tíma!


mbl.is Engum tollkvótum úthlutað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eva Joly, Jolie eða Jolly?

Um daginn spurði ég erlendan vin minn sem þekkir vel til í bankaheiminum hvort hann kannaðist við Evu Joly. Hann sagðist ekki gera það en þekkti hins vegar vel til Angelinu systur hennar.

Það breytir þó ekki því að Eva er vafalaust ágætiskona. Kannski þyrfti hún bara að vera meira jolly, eða þannig (eins og ég held til dæmis að ríkissaksóknaranum finnist).

Einhver nefnir hér að réttast væri að láta Evu hafa "þau völd sem hún þarf", þá væntanlega hvort sem hún er Joly, Jolie eða bara Jolly!

Kannski ætti bara að fara þess á leit við Evu að hún gjörist einræðisherra hér. Hún samþykkir það vafalaust ef allir lofa upp á æru og trú að hlýða!


mbl.is Eva Joly er dínamítkassi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vextir fjórum milljörðum of háir

Samkvæmt samkomulaginu er samið um að íslenska ríkið greiði Bretum 5,5% vexti af þessum lánum. Núverandi vextir á breskum sjö ára ríkisskuldabréfum eru 4,75%.

Samkvæmt þessu munu Íslendingar greiða 75 punktum hærri vexti en eðlilegt væri. Til nánari skýringar gætum við hugsað okkur að breska ríkið selji sjö ára ríkisskuldabréf til að fjármagna lánið til Íslands, með 4,75% vöxtum, og greiði þá 31 milljarð króna á ári í vexti af því. Bretar lána þetta fé áfram til Íslendinga og innheimta 35 milljarða á ári.

Breska ríkið græðir þannig 4 milljarða árlega á láninu, 28 milljarða alls á sjö árum.

Ég vona að fjármálaráðherra gangi ekki frá samningum á þessum nótum.


mbl.is Engin Icesave-greiðsla í 7 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Júní 2009
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.10.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 288242

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband