Gefum þeim seðlabankastjórann - og Gylfa

Þau vandamál sem Gylfi lýsir hér eiga sér flest rót í þeirri furðulegu peningastefnu sem Seðlabankinn rak hér fyrir hrun og rekur enn. Höfundur og helsti baráttumaður þeirrar stefnu er núverandi seðlabankastjóri. Sem kunnugt er snýst stefnan um að pissa í skóinn sinn svo manni hlýni á löppunum, (maður þurfi auðvitað bara að vera nógu fjandi duglegur að pissa).

Að því leyti sem peningastefnan á ekki sök á vandanum liggur hún í þeirri ríkisfjárfestingastefnu sem Gylfi og félagar gala hvað hæst um. Sú stefna snýst um að skuldsetja ríkið sífellt meir til að halda uppi fölsku atvinnustigi með alls kyns framkvæmdum sem enginn alvöru fjárfestir léti sér til hugar koma að fara í. Þessu má líka lýsa þannig að það snúist um að toga sjálfan sig upp á hárinu líkt og Munchausen barón gerði eitt sinn, með góðum árangri að eigin sögn.

Það besta sem ESB gæti gert fyrir okkur væri að samþykkja að þiggja seðlabankastjórann að gjöf. Við myndum kaupa undir hann miðann aðra leiðina og þeir gætu svo komið honum fyrir í einhverri matarholu í Brussel líkt og einu sinni hefur verið reynt. Þeir yrðu bara að lofa að senda okkur hann aldrei aftur! Liggur við að við gætum meira að segja gefið þeim makrílkvótann í bónus.

Gylfa mætti svo sem best senda með. Þeir geta þá, félagarnir, kennt hinum lánlausu Evrópumönnum hvernig hægt er að spræna í skóinn og hífa sjálfan sig upp á hárlufsunum samtímis.


mbl.is Biðja á um aðstoð vegna krónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stefán Þ Ingólfsson

Það er til lausn á vanda íslensku krónunnar, það er að semja við norðmenn um að tengja íslensku krónuna við þá norsku. Það eru einungis kostir við þá ráðstöfun, engir gallar. Hagsmunir þessara þjóð fara saman á svo mörgum sviðum. Það þarf bara að fara í þetta mál af alvöru sem fyrst.

Stefán Þ Ingólfsson, 26.10.2011 kl. 11:12

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

En vinnustundir Stefán það eru jú þær vinnustundirnar sem að bjuggu til verðgildið í upphafi...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 26.10.2011 kl. 12:00

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Stefán.

Gallinn við norska krónu er t.d það að mjög lítil af okkur utanríkisviðskiptum fara í þessum gjaldmiðil. Langmest viðskipit okkar er í Evrum

Það er ekki æskilegt að fara frá ISK gjaldeyrisáhættu yfir í norska krónu gjaldeyrisáhættu.

Sleggjan og Hvellurinn, 26.10.2011 kl. 12:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 287333

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 61
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband