Byggt á rangri verðbólgumælingu?

Samkvæmt lögum er markmið Seðlabankans að beita stýrivöxtum til að hamla gegn verðbólgu. Á undanförnum mánuðum hefur verðlag hækkað mjög. Ástæða þessa er fyrst og fremst gengisfall krónunnar. Þetta merkir vitanlega ekki að verðbólga hafi verið mikil.

Verðbólga myndast þegar verðgildi peninga rýrnar, yfirleitt vegna þess að framboð þeirra eykst án þess að þörfin fyrir þá aukist. Með öðrum orðum er verðbólgan mælikvarði á innistæðulausa þenslu í hagkerfinu. Verðbólga mælist því best með því að skoða þróun á verðlagi varnings eða framleiðsluþátta sem ekki breytast og eru óháðir ytri breytingum, t.d. vegna gengisbreytinga og sveiflna í framboði og eftirspurn.

Þegar olía eða aðrar hrávörur hækka í verði á erlendum mörkuðum er ástæðan ekki verðbólga á Íslandi. Þegar skipulagsbreyting verður á markaði, eins og sú sem t.d. varð á húsnæðismarkaði við innkomu bankanna, sem leiddi til stóraukinnar skuldsetningar, er ástæðan ekki verðbólga á Íslandi. Þegar gengi gjaldmiðilsins fellur af því að Seðlabankinn hefur árum saman blekkt erlenda fjárfesta til að fjárfesta í henni, og nú treysta þeir henni ekki lengur, er ástæðan ekki verðbólga á Íslandi.

Allir þessir þættir hafa áhrif á vísitölu neysluverðs, eins og eðlilegt er.

En breytingar á vísitölu neysluverðs jafngilda ekki verðbólgu eins og rakið er hér að framan. Munurinn er líklega umtalsverður. Í ágætri grein í Fréttablaðinu sl. laugardag rekur Örn Karlsson verkfræðingur þetta mál með skilmerkilegum hætti og er niðurstaða hans að líklega hafi verðlagsáhrif á verðtryggð lán verið metin 10 prósentustigum hærri en eðlilegt væri á undanförnum misserum. Ég hvet alla til að lesa greinina hans. Hún er fyrsta skynsamlega tilraunin til að fjalla um grundvallaratriði þessa máls sem ég hef séð í langan tíma.

En aftur að vöxtunum. Vegna þess að verðlagshækkun hlýtur ávallt að vera meiri en verðbólga er  líklegt að nýjasta vaxtaákvörðun Seðlabankans byggi á alrangri forsendu. Það er ekkert nýtt, en stingur óneitanlega í augun þegar öllu hugsandi fólki er dagljóst að verðbólga er engin og líklega neikvæð í raun.

Er ekki mál að linni? Er ekki kominn tími til að reyna að ráða til Seðlabankans fólk sem hefur einhvern grunnskilning á efnahagsmálum?


mbl.is Stýrivextir áfram 12%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Alveg hjartanlega sammála röksemdafærslu þinni og hef alltaf haft svipaðan skilning og þú lýsir svo ég skil ekki hvers vegna þetta hefur ekki fyrr en núna verið rætt opinberlega á þessum nótum. Þegar kemur að niðurstöðunni að það þurfi að skipta um starfsfólk í Seðlabankanum er ég ósammála. (held ég). Það virðist vera þörf á að endurskilgreining á notkun vísitölunnar þurfi að koma annarsstaðar frá. Stjórnkerfið allt verður að vera sammála um hvernig á að nota vísitölur til verðtryggingar. Nú ríkir eindrægni hjá bönkum og opinberum aðilum að framkvæma og skilgreina samkvæmt langri hefð. Þessu fylgir Seðlabankinn. Sennilega vegna þess að hann sem stofnun er ekki þess umkominn að hafa aðrar viðmiðanir. Einsog svo margt í mannlegu samfélagi verða stjórnmálamenn sem yfirmenn efnahagsstefnunnar á hverjum tíma að setjast niður og breyta þessu. ( reyndar hélt ég að sjálfstæði seðlabanka fælist m.a. í að endurskilgreina en það hefur ekki reynst þannig í raun)

Gísli Ingvarsson, 24.9.2009 kl. 09:52

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er vel hugsanlegt að ekki þurfi að skipta um fólk. Kannski er nóg að setja það á námskeið, annars vegar í hagfræði og hins vegar í gagnrýnni hugsun.

Þorsteinn Siglaugsson, 24.9.2009 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 23
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 287298

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband