Markviss vernd er eina lausnin - það verður að láta af vitleysunni

Það kemur æ betur í ljós hversu mikilvægt það er að taka strax upp þá aðferð að vernda viðkvæma hópa, en láta aðra í friði. Evrópa, þar með talið Ísland, getur ekki haldið áfram hinum ómarkvissu aðgerðum sem drepið hafa samfélögin í dróma með þeim ótöldu hörmungum sem því fylgja fyrir milljónir manna.

Vitanlega hefði átt að bregðast strax við faraldrinum með þessum hætti, fara þá leið sem sóttvarnalæknir hér mælti með þegar faraldurinn hófst, þegar hann sagði óraunhæft að ætla að koma í veg fyrir útbreiðsluna, en áherslan þyrfti að vera á að vernda þá sem væru í mestri hættu. Hefði þetta verið gert væri faraldrinum væntanlega löngu lokið hérlendis.

En nú horfum við fram á annað ár af þessu ástandi að óbreyttu, tugþúsundir hafa þegar misst vinnuna, ríkið er að lenda í ógöngum með fjármögnun hallans - það er ekki annað í boði en að láta af vitleysunni og taka upp skynsamlegar aðferðir.


mbl.is ESB missti af bóluefnislestinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Ágústsson

En erum við ekki á endasprettinum? Þurfum bara að halda í okkur andanum aðeins lengur?

Jafnvel þótt bóluefnum seinki, þau virki ekki eins og sölubæklingarnir segja og valdi einhverjum óþægindum?

Jafnvel þótt allar spár um endalok veirunnar hafi ekki ræst og sé sífellt skotið lengra út í framtíðina?

Jafnvel þótt það blasi við eftir alla þessa mánuði að lífslíkur þeirra undir sjötugu séu svo gott sem 100% þrátt fyrir alla undirliggjandi sjúkdómana sem hrjá samfélagið (offita, áunnin og meðfædd sykursýki, bæld ónæmiskerfi og hvaðeina)?

Þú ert staddur í brekku, sérð í hillingum toppinn og þegar þú nálgast hann þá skýst hann marga kílómetra lengra í burtu. 

Þurfum við ekki bara að "halda út"?

Geir Ágústsson, 19.12.2020 kl. 19:18

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Jú Geir minn, við þurfum bara að halda þetta út, eins og Sýsífos forðum ...

Þorsteinn Siglaugsson, 19.12.2020 kl. 20:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband