Hann Jói heldur áfram að stækka

Jói var átta ára. Foreldrar Jóa höfðu lengi haft af því áhyggjur að Jói væri alltaf að stækka. Þetta gerði að verkum að Jói litli varð sífellt matgráðugri og það þurfti alltaf að vera að kaupa á hann ný föt. Þau vonuðu samt alltaf að að því kæmi að Jói hætti að stækka. Nú var markmiðið að reyna að tryggja að Jói kæmist í jólafötin síðan í fyrra. Til þess var í gangi markvisst átak við að gefa Jóa eins lítið að borða og hægt var, því foreldrarnir álitu að það gæti dregið eitthvað úr vexti Jóa.

Morgunblaðið hafði komist á snoðir um þetta vandamál þarna á heimilinu og birti viðtal við foreldra Jóa. Hér eru fáein brot úr því:

"Hann stækkaði alveg óskaplega hratt þarna alveg fyrst eftir að hann fæddist, en svo virðumst við nú hafa náð utan um það og náð þessu niður bara strax."

"En svo tók þetta sig upp aftur fljótlega og það er ennþá mikil stækkun í gangi"

"Við veltum auðvitað fyrir okkur hvernig þetta verður um jólin. Það væri mikið til þess að vinna að bara með átaki að reyna að ná þessu niður og halda því þannig að hann komist nú í jólafötin."

Mun foreldrum Jóa takast að ná utan um stækkunina?

Kemst Jói í jólafötin?

Hvað svo?

Við fylgjumst spennt með.

 


mbl.is „Við erum ennþá á heiðinni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Ágæt samlíking.

"Jón" á eftir að stækka fram yfir jól og fram undir vor. 

Umgangspestar ágerast eftir því sem líður á veturinn. 

Þannig hefur það alltaf verið sama hvað menn telja, reikna og spá.

Magnús Sigurðsson, 28.10.2020 kl. 14:05

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Já, ég hugsa að við hinir einföldu alþýðumenn séum sammála um að Jói haldi líklega áfram að stækka fram undir tvítugt.

Nema náttúrulega að pillan úr myndinni "Honey, I shrunk the kids" komi fljótlega á markað embarassed

Þorsteinn Siglaugsson, 28.10.2020 kl. 14:20

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þetta er dæmisaga allra megrunarkúra. 

Ragnhildur Kolka, 28.10.2020 kl. 22:03

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ég hvet fólk til að lesa fróðlega grein Valgerðar Andrésdóttur um bóluefni sem nýlega birtist á Vísindavef HÍ. Og athyglivert samhljóminn með nýlegri umfjöllun í Lancet: https://www.visir.is/g/20202030060d/telur-ad-fyrstu-bolu-efnin-verdi-lik-lega-o-full-komin

Þorsteinn Siglaugsson, 28.10.2020 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 287272

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband