Er fulltrúi lyfjaiðnaðarins að missa tökin?

Það var athyglivert að heyra viðtalið við Víði Reynisson á RÚV í hádegisfréttum. Víðir sagði óvíst að gripið yrði til hertra aðgerða. Það sem sérstaklega vakti athygli var að hann talaði um að þörf fyrir slíkar aðgerðir yrði metin út frá raunverulegum alvarleika þeirra sýkinga sem nú væru að koma upp. Þetta er mjög mikilvægt, því ef byggja má á vísbendingum erlendis frá má búast við að alvarleiki nýrra sýkinga sé lítill.

Víðir hvatti fólk til að fara varlega. Það eina sem mér fannst skorta á var skýr hvatning til þeirra sem tilheyra viðkvæmustu hópunum að halda sig sem mest heima. En það kemur kannski á eftir.

Hér er sleginn tónn sem er í algerri andstöðu við háværar kröfur Kára Stefánssonar um lokanir og útgöngubönn.

Kannski skynsemin sé að ná yfirhöndinni og þeir sem þessum málum stýra farnir að átta sig á hversu varasamt það er að láta hagsmunaaðila stjórna aðgerðunum?

Hver veit?


mbl.is Boða til upplýsingafundar aftur í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Antonsson

Sjá sól rísa? Eftir þrautagöngu og mótbyr virðist sem þeir sem haldið hafa uppi gagnrýni á aðgerðir stjórnvalda séu að ná árangri. Margar góðar greinar eftir þig og Jón Magnússon á blogginu eru nærtækastar en einnig grein Gunnlaugs Jónssonar eðlisfræðings sem taldi að ríkisstjórnin hafi valið "mest íþyngjandi kostinn af tillögu læknis." Allar þessar greinar sýna lausnir sem vert væri að útfara, en ríkistjórnin sem segir að séu í vinnslu? Stjórnmálamenn eiga ekki alfarið að kasta ábyrgðinni á embættismenn sem nota rök sem eru hendinni næst. 

Ríkisstjórnin virðist hafa valið lausnir síðasta mánuð þar sem ferðamaðurinn er hafður sem sökudólgur, en kjósendur máttu margir koma saman án þess að hafa grímur fyrir vitund á t.d. veitingastöðum. Endurtekin mistök í Englandi og Danmörku sýna að þolraun Svía er að skila árangri meðan hinir eru með skyndilausnir frá degi til dags. 

Sigurður Antonsson, 20.9.2020 kl. 14:42

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Já Sigurður, það skyldi þó aldrei vera að umræðan nái að hola eitthvað steininn. Við skulum vona það.

Þorsteinn Siglaugsson, 20.9.2020 kl. 15:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 287299

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband