Hvaða, hvaða ...

Gengur nú ekki að láta Eyþór koma í sjónvarpið að tuða þetta í honum Degi.

Veit ekki maðurinn að það er verið að vinna á fullu í að móta samráðshóp til að móta áætlun til að móta aðgerðir til að sjá um að allir lélegu skólarnir verði áfram í fararbroddi í Reykjavík...

Hefur hann enga hugmynd um að það er á teikniborðinu að það verði bráðum sett í gang samráðsverkefni um að úthluta lóðum og teikna hús sem verða kannski einhverntíma byggð...

Gerir hann sér ekki grein fyrir að það þýðir ekkert að leggja vegi því þá keyrir fólk á vegunum, að þótt Sundabraut verði lögð tryllist bara úthverfalýðurinn í Grafarvogi og keyrir sem mest hann má allan sólahringinn á brautinni til að fylla hana svo heiðarlegt fólk kemst ekki lönd eða strönd - til að fara á fund í samráðshópnum ...

 


mbl.is Býr enginn í því sem er verið að hanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta hlýtur að verða tekið til skoðunar, í að minnsta kosti nokkur ár. ;)

Guðmundur Ásgeirsson, 8.2.2018 kl. 22:59

2 Smámynd: Tryggvi Helgason

Eitt er það sem ég heyri engann minnast á, en það er, - að fólk fer að flýgja frá óreiðunni í Reykjavík.

Tryggvi Helgason, 8.2.2018 kl. 23:12

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

embarassed

Þorsteinn Siglaugsson, 9.2.2018 kl. 08:46

4 Smámynd: Geir Ágústsson

Stjórnkerfið er straumlínulagað og skilvirkt og tekur á öllum málum og vandamálum af festu og samkvæmt ströngum áætlunum.

Fyrst ber að nefna þessar nefndir:

    • Umhverfis- og skipulagsráð

    • Skóla- og frístundaráð

    • Velferðarráð

    • Íþrótta- og tómstundaráð

    • Menningar- og ferðamálaráð

    • Mannréttindaráð

    • Stjórnkerfis- og lýðræðisráð

    • Aðrar nefndir ráð og stjórnir

    Undir "Aðrar nefndir ráð og stjórnir" eru svo:

      • Borgarráð

      • Fjölmenningarráð

      • Hverfisráð

      • Íþrótta- og tómstundaráð

      • Mannréttindaráð

      • Menningar- og ferðamálaráð

      • Skóla- og frístundaráð

      • Stjórnkerfis- og lýðræðisráð

      • Umhverfis- og skipulagsráð

      • Velferðarráð

      • Öldungaráð

      • Fastanefndir

      • Aðrar nefndir

      • Stjórnir

      Undir "Aðrar nefndir" eru svo:

        • Afréttarmál í landnámi Ingólfs,

        • Ásmundarsafn - stjórn,

        • Barnabókaverðlaun - úthlutunarnefnd,

        • Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar, dómnefnd,

        • Búfjáreftirlitsnefnd,

        • Nýsköpunarmiðstöð Íslands - ráðgjafarnefnd,

        • Samráðshópur um forvarnir,

        • Samráðsnefnd um málefni aldraðra,

        • Samvinnunefnd miðhálendis,

        • Sinfóníuhljómsveit Íslands - stjórn og verkefnavalsnefnd,

        • Skóli Ísaks Jónssonar - skólanefnd,

        • Stýrihópur um búsetuúrræði eldri borgara,

        • Þjónustuhópur aldraðra.

        • Endurskoðunarnefnd

        • Ferlinefnd fatlaðs fólks

        • Fiskimannasjóður Kjalarnesþings

        • Forvarnarnefnd

        • Kirkjubyggingarsjóður

        • Kjarasamningar, nefndir

        • Kjarvalsstofa í París, nefnd

        • Kjörstjórnir

        • Leikfélag Reykjavíkur, hússtjórn

        • Listahátíð, fulltrúaráð, stjórn

        • Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar, stjórn

        • Ofbeldisvarnarnefnd

        • Ráðhús, hússtjórn

        • Reykjanesfólkvangur, stjórn

        • Samband íslenskra sveitarfélaga

        • Samstarfsnefnd borgarfulltrúa og alþingismanna Reykvíkinga

        • Samstarfsnefnd Reykjavíkurprófastsdæma

        • Samstarfssjóður Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafnar, stjórn

        • Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu

        • Skólanefndir framhaldsskóla

        • Umferðarráð

        Ekki má svo gleyma hinum ýmsu stjórnum:

          • Stjórn Faxaflóahafna

          • Stjórn Svanna, lánatryggingasjóðs kvenna

          • Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins

          • Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins BS.

          • Stjórn Strætó BS.

          • Stjórn Sorpu

          • Hjúkrunarheimilið Eir, stjórn

          • Hjúkrunarheimilið Skjól, stjórn

          • Hjúkrunarheimilið Skógarbær, stjórn

          • Orkuveita Reykjavíkur, stjórn

          Já, það er nóg að gera.

          Geir Ágústsson, 9.2.2018 kl. 13:10

          5 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

          Já, það vantar ekki nefndirnar. Nema það virðist alveg vanta nefnd sem ákveður hvað hver nefnd á að gera svo hin mikilvægu verkefni skarist nú ekki.

          Þorsteinn Siglaugsson, 9.2.2018 kl. 15:01

          Bæta við athugasemd

          Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

          Um bloggið

          Hitt og þetta

          Höfundur

          Þorsteinn Siglaugsson
          Þorsteinn Siglaugsson

          Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

          Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

          Apríl 2024
          S M Þ M F F L
            1 2 3 4 5 6
          7 8 9 10 11 12 13
          14 15 16 17 18 19 20
          21 22 23 24 25 26 27
          28 29 30        

          Nýjustu myndir

          • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
          • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
          • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
          • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
          • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

          Heimsóknir

          Flettingar

          • Í dag (20.4.): 2
          • Sl. sólarhring: 4
          • Sl. viku: 27
          • Frá upphafi: 287254

          Annað

          • Innlit í dag: 2
          • Innlit sl. viku: 27
          • Gestir í dag: 2
          • IP-tölur í dag: 2

          Uppfært á 3 mín. fresti.
          Skýringar

          Innskráning

          Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

          Hafðu samband