Ógildur samningur?

Það fer ekki hjá því að um mann fari hrollur þegar ríkisvaldið gerir samning þar sem réttindum eins viðsemjanda er vikið til hliðar vegna þess að þingið álítur hann "vondan kall".

Það má vel ímynda sér að þessi samningur standist hvorki stjórnarskrá né þær kröfur um sanngirni sem öll löggjöf um samninga grundvallast á.

Það kæmi ekki á óvart þótt fljótlega myndi reyna á þennan samning fyrir dómstólum. Það gæti til dæmis gerst ef Novator seldi hlut sinn í félaginu eða missti hann til kröfuhafa.

Komi til þess eru allar líkur á að niðurstaða dómsins verði að víkja beri samningnum til hliðar vegna þess að hann gangi gegn eðlilegum sjónarmiðum um sanngirni í samningum.

-----

Nú má vafalaust halda því fram að Björgólfur Thor beri ábyrgð á ýmsu sem aflaga fór í bankahruninu. Það er hins vegar dómstóla að skera úr um ábyrgð hans - lögum samkvæmt. Svona málsmeðferð vekur óneitanlega þá spurningu hvort meirihluti þingmanna telji réttarríkið einskis virði. Vill meirihluti þingsins virkilega stefna í átt til gjörræðis þar sem ríkisvaldið deilir og drottnar yfir þegnunum - ekki á grunni almennra laga, heldur einstaklingsbundinna sjónarmiða?

Hér er um grafalvarlegt mál að ræða. Jón Gunnarsson á þakkir skildar fyrir að andmæla þessu kröftuglega. Fleiri hefðu mátt fara að dæmi hans.


mbl.is Þingið kveður upp siðferðisdóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ber að skilja þig svo að þú teljir engu máli skipta hvort störf Alþingis hafi tengingu við siðvitund þjóðarinnar?

Þetta mál snýr þannig við mér í fljótu bragði að verið sé að fullnusta þýðingarmikinn viðskiptasamning við mann sem á margvísleg vanskil óuppgerð. Það er rætt um sértækar ívilnanir þar sem háar upphæðir er um að tefla.

Ég hef heyrt raddir um fordæmisgildi þar sem léttvægari efni hafa verið í umræðu en þetta.

Ég kalla svona vinnubrögð Alþingis óskammfeilni.

Árni Gunnarsson, 28.4.2010 kl. 18:38

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ég veit ekki alveg hvað þú meinar þegar þú talar um að störf þingsins hafi tengingu við siðvitund þjóðarinnar. Þú kannski nennir að útskýra það nánar.

Að mínu viti er vandinn í þessu máli annars vegar lagalegur. Samkvæmt lögum eru ósanngjarnir samningar ógildir og margir dómar hafa fallið á þeim grundvelli. Hins vegar snýr hann að réttarríkinu og valdmörkum stjórnvalda. Og mér finnst þau ganga langt út fyrir þau mörk þegar gildisdómar um einstakar persónur verða grundvöllur opinberra samninga og jafnvel lagasetningar.

Varðandi sértækar ívilnanir finnst mér reyndar að þær eigi einfaldlega ekki að veita.

Þorsteinn Siglaugsson, 28.4.2010 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 287275

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband