Ofstækið er ekki til eftirbreytni

Því miður hefur borginni verið stjórnað af ofstækisfullu fólki undanfarin ár. Allur þessi fáránlegi vandræðagangur varðandi gjafir til skólabarna á sér rót í því að ofstækisfólkið hatast við biblíugjafir Gídeonfélagsins af engu minni einurð en ISIS hatast við fornminjar í Írak.

Það þarf að koma ofstækisfólkinu frá völdum. En til þess þarf trúverðugan valkost.


mbl.is Hjálmarnir gefnir utan skólatíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ekki ofstæki að vilja ekki nota skólatíma undir trúboð og auglýsingamennsku. Vilji þessir aðilar endilega gefa krökkunum eitthvað þá er þeim það frjálst utan skólatíma. En það kostar náttúrulega eitthvað meira ef þeir þurfa að gera allt sjálfir en geta ekki velt kostnaði og fyrirhöfn yfir á skólana. Skattarnir mínir eiga að borga stærðfræðikennslu en ekki hjálmadreifingu fyrir Eimskip, pennadreifingu fyrir Goldfinger og skólatöskudreifingu fyrir samtök Evrópusinna.

Jós.T. (IP-tala skráð) 14.4.2015 kl. 00:23

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er svolítið einkennilegt að halda því fram að það sem nemendur fá ókeypis frá aðilum úti í bæ valdi kostnaði fyrir skólana.

Þorsteinn Siglaugsson, 14.4.2015 kl. 08:28

3 identicon

Kennarar stimpla sig ekki út þó Eimskip yfirtaki kennslustofurnar. Og útkoman verður að annað hvort þarf að bæta við kennslustundum eða veita minni kennslu. Þetta er einn angi af því virðingarleysi sem borið er fyrir menntun á Íslandi.

Jós.T. (IP-tala skráð) 15.4.2015 kl. 09:23

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Kennararnir eru á launum hvort sem er og margt minna gagnlegt sem fram fer í kennslustofum en nokkurra mínútna fræðsla um notkun hjólahjálma.

En orðalagið að hægt sé að "bera virðingarleysi fyrir" ... einhverjum, þykir mér skemmtilegt. Hljómar svona svipað og þegar talað er um "yfirgripsmikla vanþekkingu". Takk fyrir það.

Þorsteinn Siglaugsson, 15.4.2015 kl. 12:06

5 identicon

Sparisjóðurinn fékk að dreifa reglustikum í Íslenskutíma, okkur var ekki bætt það upp og því er málfar stundum undarlegt. Ég er á því að meðan kennararnir eru á launum hvort sem er stundi þeir kennslu en séu ekki að aðstoða einhver fyrirtæki í vörudreifingu.

Jós.T. (IP-tala skráð) 15.4.2015 kl. 13:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband