Góðar fréttir

Það er gott að forsætisráðherra skuli nú taka þetta mál upp. Það er leitun að góðum röksemdum fyrir því að staðsetja spítalann við Hringbrautina, hvað þá fyrir því að dreifa honum yfir allt þetta svæði í stað þess að byggja hátt og þétt. Helstu rökin virðast þau að það sé "löngu búið að ákveða þetta", það megi "alls ekki bakka" og annað af þeim toga. Engin raunveruleg rök.


mbl.is Nýr Landspítali í Efstaleiti?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Í hádegisfréttum í dag er svo dregin fram enn ein gamalkunnug falsröksemd - það sé "búið að eyða svo miklu í hönnunina". Slíkar "sunk cost" röksemdir eru eitt elsta bragðið í bókinni þegar menn eru rökþrota: Sokkinn kostnaður kemur aldrei aftur og því skiptir hann aldrei máli þegar taka á ákvörðun. Ef menn vilja tala um kostnað verða þeir að bera saman kostnaðinn við að halda áfram á sama stað og kostnaðinn við að byrja að nýju á nýjum stað. Það sem búið er að eyða skiptir ekki máli.

Þorsteinn Siglaugsson, 2.4.2015 kl. 12:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 287254

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband