Hver borgar?

Rök félagsmálaráðherra fyrir niðurfærslu bílalána eru að eðlilegt sé að lánið sé í samræmi við eignina. Nú eru bílar hins vegar með þeim ósköpum gerðir að þeir verða verðlausir með tímanum. 100% bílalán verða því yfirleitt á endanum hærri en nemur andvirði bílsins hvað sem gengisbreytingum og verðbólgu líður. Bílalán eru því í rauninni neyslulán en ekki fjárfestingalán. Því er viss hugsunarvilla í því fólgin að eitthvert samhengi eigi að vera milli verðmætis bíls og láns, jafnvel þótt bíllinn sé settur sem trygging fyrir láninu. Ef fara á þessa leið með bíla, ætti þá ekki líka að gera húsgagnaverslunum að færa niður raðgreiðslulán af dýrum sófasettum til samræmis við verðmæti þeirra?

Þetta var um forsendurnar að baki. Spurningin sem snýr að skattgreiðendum er hins vegar hver á að greiða fyrir niðurfærsluna. Það er bersýnilegt að ef sett verða lög sem skerða eignir fjármögnunarfyrirtækjanna afturvirkt eiga þau skaðabótarétt á hendur ríkinu. Það liggur því eiginlega í hlutarins eðli að það verða skattgreiðendur sem borga. Þannig mun verkakonan sem kaus að nurla saman fyrir notuðum bíl í stað þess að skuldsetja sig fyrir nýjum greiða afborganirnar fyrir hálaunamanninn sem keypti tíu milljóna jeppa. Hversu réttlátt er það?

 


mbl.is Lán dýrra bíla afskrifuð mest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: A.L.F

Við getum ekki endalaust horft á hvað sé réttlátt gagnvart þeim sem fór varlega. Það þarf að koma jafnvægi á þjóðfélagið og það eru ekki bara þeir sem tóku 10m.kr lán sem græða á þessu.

Ég þekki nokkra sem tóku 1,5-2m.kr lán í sínum bílum, svo hrynur allt og lán bílana hækka um helming, mánaðarleg afborgun þessa fólks fer upp úr öllu valdi sem kemur niður á öðrum lánum og framfærslugetu þessa einstaklinga.

Get alveg viðurkennt það að ég er ekki sátt við það að hafa borgað út í mínum bíl og sitja núna uppi með það að lánið sem ég tók sé komið yfir markaðsvirði bílsins, en ég muni samt falla í þann hóp að fá ekki þessa aðstioð þar sem lánið rétt slefar í að vera yfir markasvirði hans. Mínar afborganir hafa samt hækkað um helming.

En ég er sátt, þó mig svíði þessa hækkun, að vita til þess að hinn almenni borgari sem er á venjulegum verkamannalaunum fær hjálp..skiptir ekki máli að sá hinn sami hafi látið blekkjast og keypt bíl á 100% láni.

VIÐ GETUM ekki endalaust hugsað "Þú getur sjálfum þér um kennt"

A.L.F, 15.3.2010 kl. 10:02

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ég er alveg sammála því að ábyrgðin er ekki bara þeirra sem skulda. En það er í það minnsta alveg á hreinu að hún er ekki þeirra sem engin lán tóku. Ég hef ekkert á móti því að lánastofnanir lækki höfuðstól lána svo fremi sem þær gera það á eigin kostnað. En þegar það fer að kosta skattgreiðendur fé er of langt gengið.

Þorsteinn Siglaugsson, 15.3.2010 kl. 10:09

3 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

Hugmynd  ráðherrans er botnlaus og  snargalin.

Eiður Svanberg Guðnason, 15.3.2010 kl. 10:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 287182

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband